þá er A gotið orðið tveggja vikna og eru allir hvolparnir búnir að opna augu og farin að standa i allar lappir. er því farið að færast meira líf í litlu molana okkar.
Tinnusteins Aurskriða (skriða) Tinnusteins Alþjófur (þjófur) Tinnusteins Angurboði (boði) Tinnusteins Alræmdur þann 25.02.2021 fæddust 4 heilbrigðir hvolpar, 3 rakkar og 1 tík undan ISCH ISJCH OB-I Gjósku Vænting og OB-I Forynju Aston. eru þau bæði mynduð með fríar mjaðmir og olboga,heilbrigð geðgóð og með frábært vinnu eðli. eru þetta fyrstu Tinnusteinshvolpar og við gætum ekki verið ánægðari með þessa litlu mola. hlökkum til að sjá þá vaxa og dafna.
@Tinnusteins ræktun kynnir með stolti sitt fyrsta got en er það væntanlegt nú í lok febrúar. Foreldrar eru glæsilegu meistararnir, ISCH ISJCH OB-I Gjósku Vænting og OB-I Forynju Aston.
Ég, Tinna Ólafsdóttir ákvað fyrir mörgum árum að fá mér schäfer og lagðist í mikla rannsóknar vinnu á þeim ræktunum og hundum sem voru á Íslandi á þeim tíma. Eftir að hafa skoðað alla virkilega vel kom ekkert annað til greina en að fá okkur hvolp hjá Gjóskuræktun. Við vorum virkilega heppin að þau voru með got undan glæsilegum meisturum sem bæði höfðu lokið vinnuprófum, en heillaði það okkur mjög. Þar fengum við hana ISCH ISJCH OB-I Gjósku Væntingu okkar, eða Kæju eins og hún er kölluð dagsdaglega. Við vorum virkilega heppin með eintak, en er hún bæði gullfalleg, heilbrigð, geðgóð og full af vinnuvilja. En Kæja er eini síðhærði schäferinn á Íslandi sem lokið hefur bæði, hlýðni og sporaprófi, eini hundurinn sem hefur hlotið OB-I titil eða Hlýðni 1 meistari sem og er hún eini síðhærði hundur landsins sem hefur orðið Íslenskur meistari, en aðrir hafa einungis hlotið sýningarmeistaratitil. Kæja hefur uppfyllt allar okkar kröfur um frábæran hund og lá það því vel við að taka undan henni got, en hún á eitt got fyrir hjá ræktendum sínum hjá Gjósku ræktun. Við vorum ekki lengi að ákveða að para Kæju við hlýðni meistarann hann OB-I Forynju Aston, en höfum við fylgst með honum frá því að hann var hvolpur. Aston, eða Váli eins og hann er kallaður, er virkilega elegant og fallegur hundur, hann er með A/A mjaðmir og olnboga og virkilega heill í kollinum og með einar flottustu hreyfingar sem við höfum séð. Váli hefur verið einn stigahæsti hundur í hlýðni síðan að hann byrjaði í sportinu og hefur sýnt frábæra takta í sporaleit, en stefnt er á próf í því síðar. Honum hefur líka gengið vel á hundasýningum, enda er hann undan glæsilegum innfluttum meisturum sem bæði hafa sannað sig á sýningum, í vinnu og í ræktun. Við leiðum hér saman hunda af miklum gæðum og með frábæra vinnueiginleika kynsins. Við leggjum metnað í að byrja okkar ræktun af alvöru og vönduðum því valið vel. Vinnueiginleikar, heilbrigði, geðslag og útlit voru allt mjög mikilvægir hlutir hjá okkur og getum við vel við unað við þessa pörun. Nú hlökkum við mikið til þess að fá í heiminn litlu molana okkar. Áhugasamir um hvolpa úr þessi goti geta haft samband í s. 694-4861 eða á [email protected] |
TinnusteinsArchives
March 2021
Categories |