Um okkur
Tinnusteinsræktun er í eigu Tinnu Ólafsdóttur og Friðbjörns Ómarssonar. Markmið okkar er að rækta fallega, heilbrigða og vinnudrifna Schäferhunda en auðvitað fyrst og fremst góða heimilis hunda.
Ég eignast minn fyrsta Schäferhund árið 2017 hana ISCh ISJCh OB-I Gjósku Vænting kölluð Kæja heima fyrir. Hef ég gert margt með henni Kæju minni t.d. höfum við klárað Hlýðni Brons, Hlýðni I og Spor I. Kæja hefur líka klárað titilinn OB-I eða Íslenskur Hlýðni I meistari og er hún fyrsti og eini síðhærði Schäferhundurinn sem hefur náð þeim titli, en til að verða OB-I þá þarf hundurinn að fá þrisvar sinnum 1.einkunn í Hlýðni I.
Kæja er einnig ISJCh - Íslenskur ungliða meistari og ISCh - Íslenskur meistari, en hún Kæja er líka fyrsti og eini síðhærði Schäferinn sem hlýtur titilinn ISCh. Til að verða ISCh – Íslenskur meistari þá þarf hundurinn að hafa fengið þrisvar sinnum Íslenskt meistarastig á sýningum á vegum HRFÍ og hafa lokið vinnuprófum, Hlýðni Brons og Spor I.
Kæja hefur ávallt raðað sér í sæti um stigahæstu Schäferhunda ársinns í vinnu og á sýningum. 2018 var Kæja stigahæsti Schäferhundurinn í Hlýðni Brons, 2019 var hún stigahæsti Schäferhundurinn í Hlýðni I og í öðru sæti í Spor I.
Hægt er að segja að ég geri fátt annað en að flækjast með hundinn minn, en það er mitt áhugamál og ætlun mín að rækta taugasterka, vinnuglaða og andlega heila hunda.